Bugðulækur 9, 105 Reykjavík (Austurbær)
88.700.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
5 herb.
103 m2
88.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1958
Brunabótamat
46.250.000
Fasteignamat
77.600.000

Hallir fasteignamiðlun kynna í einkasölu vel skipulagða og snyrtilega fimm herbergja sérhæð við Bugðulæk 9, 105 Reykjavík. Íbúðin er á þriðju hæð (efstu) og er með fallegu útsýni til allra átta.
Eignin er 103,60 fermetrar skv skráningu HMS, þar af er geymsla 1,80 fm en hún er staðsett á hæðinni. Íbúðin skiptist í; anddyri, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi og nýlega uppgert baðherbergi, einnig er sameiginlegt þvottahús á jarðhæð. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt.
Eldhúsinnrétting íbúðarinnar er upprunaleg og er hún teiknuð af Kristínu Guðmundsdóttur (1923–2016) en hún var fyrsti menntaði innanhússarkitekt landsins. Kristín ruddi brautina þegar hún sigldi árið 1943 með Brúarfossi til New York og fór með lest til Chicago þar sem hún hóf nám í innanhússarkitektúr og hönnun við Northwestern University.  Ekki hafa margar eldhúsinnréttingar varðveist eftir hana og því fágætt að finna upprunalega eldhúsinnréttingu í góðu ástandandi í íbúðum i dag.

Húsið er byggt árið 1958, steinað að utan og hefur hlotið reglubundið viðhald í gegnum árin.
Mjög góð staðsetning í Laugalækjahverfinu, en stutt er í almenningssamgöngur ásamt því að margþætt þjónusta, skóli og verslanir eru til staðar í hverfinu að ógleymdi Laugardalslaug.
Allar nánari upplýsingar veitir Heiða Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 779-1929 og á netfanginu [email protected].

Nánari lýsing íbúðar:

Sameiginlegur inngangur með íbúðinni á annari hæðinni. Sameignin er snyrtileg og hefur nýlega verið máluð og teppalögð.
Hol/gangur með parket á gólfi, laus skápur fylgir ekki.
Stofan er með parket á gólfi og útgengi út á norð/vestur svalir. 
Eldhúsið er með parket á gólfi, helluborð, stæði fyrir  uppþvottavél, ofn í vinnuhæð. Innréttingin er upprunaleg og hönnuð af Kristínu Guðmundsdóttur.
Baðherbergið er nýlega uppgert, sjá nánar í framkvæmdasögu hér fyrir neðan.
Svefnherbergisgangur er með parketi á gólfi og innbyggðum skáp.
Fjögur herbergi með skápum, þar af er einn skápurinn hannaður af Kristínu Guðmundsdóttur í sama stíl og eldhúsinnréttingin, parket á gólfum. Útgengi er út á svalir frá einu herberginu.
Lítil geymsla á hæðinni við hlið inngangs íbúðar.
Sameiginlegt þvottahús og þurkherbergi á jarðhæðinni.  
Gólfefni eru farin að láta á sjá á nokkrun stöðum, en gegnheilt parket er á hluta íbúðar sem hægt er að pússa upp.

Framkvæmdasaga samkvæmt upplýsingum seljanda 2023-2025
2024 var baðherbergi breytt allt endurnýjað í hólf og gólf og flísalagt,  hiti settur í gólf, bað fjarlægt og nýr sturtubotn steyptur upp. Sett var upp nýtt vegghengt salerni, baðinnrétting, speglaskápur, vaskur, handklæðaofn, sturtuhilla, ásamt var sett upp ný blöndunartæki frá More við vask og í sturtunni. Rafmagn, lýsing og pípulagnir hefur allt verið endurnýjað og öndun á klóakröri lagfærð inn í vegg ásamt þurfi að gera við öndun á þaki fyrir ofan baðherbergi.
2023 var ofnar og hitagrind yfirfarið og skipt var um þrýstijafnari í hitagrind í kjallara og allir ofnhausar  ofnum endurnýjaðir í íbúð. Einnig var íbúðin máluð, nýir reykskynjarar settir upp, og nýlega hefur verið sett upp í stofunni hljóðeinangrunarplötur á einn vegg og nýjar gardínu settar upp.
2025 er fyrirhugað að klára glugga og svalahurða skipti í íbúð sem búið er að panta en á eftir að setja upp, seljendur mun klára að borga það og fylgja því eftir. Skipta á um einn glugga og svalahurð inn í stofu sem snýr að Bugðulæk 7. Einnig á að skipta um svalahurð og áföstum glugga inn í svefnherbergi næst stofunni.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hallir Fasteignamiðlun því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.