Þorrasalir 17, 201 Kópavogur
98.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
124 m2
98.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2014
Brunabótamat
66.120.000
Fasteignamat
84.950.000
Opið hús: 20. október 2024 kl. 14:30 til 15:00.

Opið hús: Þorrasalir 17, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 02 09. Eignin verður sýnd sunnudaginn 20. október 2024 milli kl. 14:30 og kl. 15:00.

Hallir fasteignamiðlun og Heiða Guðmundsdóttir, lgf., kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða 4herb endaíbúð með sér stæði í bílageymslu við Þorrasali 17, 201 Kópavogi. Sérinngangur er inn búðina frá jarðhæð. Frá alrými er útgengi út á 9,1 fm yfirbyggðar svalir sem hægt er að nýta allan ársins hring (svalirnar eru ekki inn í fermetratölu íbúðar). Eignin er skráð samkvæmt fasteignaskrá HMS 124,1 fm, þar af er sér geymsla 14,2 fm. Eignin skiptist í forstofu, alrými eldhúss, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar, sér geymslu og hjólageymslu í sameign. Allar innréttingar eru vandaðar og koma frá Axis og tæki í el
dhúsi eru af gerðinni AEG.
Aðkoman að húsinu er öll hin snyrtilegasta, stórt upphitað hellulagt plan fyrir framan hús. Í bílastæðahúsi er aðstaða til að þvo bíla og tengingar fyrir hleðslustöð eruð við stæðið. Eignin er byggð árið 2014 og verið er að mála blokkina að utan.
Róleg staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er m.a. í skóla, verslanir, golf, sund og náttúruna. Undirgögn eru staðsettar undir umferðargötur á leið barna í skóla.


Nánari lýsing:
Anddyri, gangur, stofa, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, og þvottahús.  
Innréttingar eru vandaðar og koma frá Axis. Eldhúsinnrétting er liggjandi spónlögð eik og efri skápar í eldhúsi eru sprautulakkaðir hvítir, haldalausir. Borðplötur eru steinlagðar.
Innihurðar eru frá Birgisson (Ringo) og eru eikarhurðar.
Bökunarofn, helluborð og gufugleypir eru af gerðinni AEG frá Bræðurnir Ormsson.
Gólf og veggir í baðherbergjum og gólf í þvottahúsum eru flísalögð.
Á baði er vegghengt salerni og handlaug með einnar handar blöndunartækjum og stór flísalögð sturta.
Í eldhúsi er niðurfelldur stáleldhúsvaskur með einnar handar blöndunartækjum.
Í þvottaherbergi er vaskur í borðplötu.
Parket er á gólfum stofu, eldhúss og herbergja.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Heiða í síma 779-1929, [email protected]

FASTEIGNAMAT ÁRSINS 2025 ER KR. 85.800.000,-

Í lögum um fasteignakaup  er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hallir fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga . Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hallir Fasteignamiðlun ehf því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.