Laugavegur 103, 105 Reykjavík (Austurbær)
54.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
46 m2
54.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1967
Brunabótamat
29.200.000
Fasteignamat
44.000.000


Hallir fasteignamiðlun kynna í einkasölu vel skipulagða og snyrtilega 2ja herbergja íbúð í mikið endurnýjuðu lyftuhúsi við Laugaveg 103, 105 Reykjavík. Eignin er á annarri hæð og er 46,2 fermetrar skv skráningu HMS og skiptist í; anddyri, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og þar af er sérgeymsla í sameign 7,0 fm. Yfirbyggðar suðursvalir sem hægt er að nýta allan ársins hring. Þvottaaðstaða innan íbúðar. Sameiginleg stæði fylgja íbúð. Eignin hefur verið leigð út til ferðamanna og hefur verið með gistileyfi. Eignin er mikið bókuð fram á haust og geta þær bókanir fylgt íbúðinni án aukakostnaðar. Ísskápur og uppþvottavél fylgja og húsgögn geta einnig fylgt íbúðinni sé þess óskað. Mjög góð staðsetning í austurhluta miðbæjar Reykjavíkur, en eignin er staðsett nærri Hlemmtorgi. Stutt er í almenningssamgöngur ásamt margþættri þjónustu, skóla að ógleymdum fjölmargra veitingastaða og verslana svo fátt eitt sé nefnt. Það styttist í að framkvæmdum á svæðinu í kringum Hlemm fari að ljúka. Gert er ráð fyrir góðri aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Hið nýja Hlemmtorg mun skarta gróðri, setsvæðum, hjólastæðum og óformlegum leikrýmum auk þess sem gert verður ráð fyrir að veitingastaðir geti vaxið út í göturýmið. Einnig verða útbúin stæði fyrir fatlaða, rafhleðslustæði og leigubílastæði. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar veitir Heiða Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 779-1929 og á netfanginu [email protected].


Nánari lýsing
Anddyri: Gengið er úr snyrtilegri sameign inn í forstofu með fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa: Björt stofa með útgengi á yfirbyggðar suðursvalir, stofa og eldhús/borðstofa eru í alrými. Parket á gólfi.
Eldhús: með fallegri innréttingu og stein á borðum, ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Með sturtu og upphengdu salerni. Þvottaaðstaða með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar í hólf og gólf.
Öll gólfefni íbúðar eru nýleg. 
Loftræstikerfi er í íbúðinni.
Í sameign er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla ásamt sameiginlegum bílastæðum.

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hallir Fasteignamiðlun því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.