Laugavegur 62, 101 Reykjavík (Miðbær)
30.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Stúdíóíbúð
1 herb.
34 m2
30.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1979
Brunabótamat
19.300.000
Fasteignamat
37.550.000

Hallir Fasteignamiðlun kynnir í einkasölu studio íbúð á efstu hæð (þriðju) við Laugaveg 62, 101 Reykjavík. Íbúðin er 34,3 fm skv skráningu HMS og var upphaflega hluti af einni íbúð, sjá meðfylgjandi fyrir og eftir teikningar hvar íbúðinni hefur í dag verið skipt upp í 2 herb- og studio íbúð. Íbúðin þarfnast standsetningar við, en íbúðin er u.þ.b. tilbúin til innréttingar. Skjólgóðar svalir eru á bakhlið. Húsið er steypt og var byggt árið 1978, eitt bílastæði á baklóð hússins fylgir íbúðinni. Húsið var nýlega múrað og málað að utan, skipt var um glugga og gler þar sem þörf var á og þak yfirfarið og lagfært.  Inngangur að íbúðinni er frá Vitastíg. Góð staðsetning á Laugaveginum þar sem stutt er í sundlaug, skóla og margþætta þjónustu, verslanir, veitingastaði og allt það sem miðbær Reykjavíkur hefur upp á að bjóða. Afhending er við kaupsamning.

Allar nánari upplýsingar veitir Heiða í síma 779-1929 og á netfanginu [email protected].

Nánari lýsing:

Sameiginlegur inngangur með 2 herb íbúð, reisa þarf vegg og setja hurð til að loka af studio íbúðinni.
Standsetja þarf íbúðina, klæða þarf veggi, stúka af baðherbergi, setja upp eldhúsinnréttingu, leggja gólfefni og mála svo eitthvað sé nefnt.
Alrými er mjög bjart með útgengi út á svalir.
Aðstaða er fyrir þvottavél innan íbúðar.
Skriðloft yfir íbúð.
Steypt gólf.
2herb íbúðin er einnig til sölu og því er hægt að kaupa báðar íbúðirnar. Heildarfermetrar eignarinnar yrðu þá 108,0 fm og ásett verð 84.600.000,- kr

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hallir Fasteignamiðlun því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.