Laugavegur 62, 101 Reykjavík (Miðbær)
84.600.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
108 m2
84.600.000
Stofur
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1979
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Hallir Fasteignamiðlun kynnir í einkasölu tvær íbúðir, hvor um sig með sér fastanúmer, á efstu hæð við Laugaveg 62, 101 Reykjavík.  Íbúðirnar eru samtals 108,0 fm, nánar tiltekið: sameiginlegur inngangur sem er 8,0 fm, studio íbúð sem er 34,7 fm  og 2 herb íbúð sem er 65,7 fm skv skráningu HMS. Upphaflega var þetta ein íbúð, sjá meðfylgjandi fyrir og eftir teikningar. Íbúðirnar þurfa standsetningar við, frágangsvinna er eftir í 2 herb íbúðinni en studio íbúðin er u.þ.b. tilbúin til innréttingar. Skjólgóðar svalir eru á bakhlið hússins sem hefur verið skipt upp á milli íbúðanna. Húsið er steypt og var byggt árið 1978, eitt bílastæði er á baklóð hússins og fylgir það studio íbúðinni. Húsið var nýlega múrað og málað að utan, skipt var um glugga og gler þar sem þörf var á og þak yfirfarið og lagfært. Íbúðirnar eru tilvaldar til útleigu en gefa væntanlegum kaupanda einnig þann möguleika á að búa í annarri íbúðinni meðan hin er í útleigu. Inngangur að íbúðunum er frá Vitastíg. Góð staðsetning á Laugaveginum þar sem stutt er í sundlaug, skóla og margþætta þjónustu, verslanir, veitingastaði og allt það sem miðbær Reykjavíkur hefur upp á að bjóða. Afhending er við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar veitir Heiða í síma 779-1929 og á netfanginu [email protected].

Nánari lýsing:

Sameiginlegur inngangur, reisa þarf vegg og setja hurð til að loka af studio íbúðinni.
Studio íbúð,
standsetja þarf íbúðina,
klæða þarf veggi, stúka af baðherbergi, setja eldhúsinnréttingu, gólfefni og mála svo eitthvað sé nefnt.
Alrými er mjög bjart með útgengi út á svalir.
Aðstaða er fyrir þvottavél innan íbúðar.
Skriðloft yfir íbúð.
2 herbergja íbúð/ var áður 3 herbergja íbúð og auðvelt er að bæta við auka herbergi, sjá meðfylgjandi teikningu
Komið er inn í mjög bjart alrými 
Nýleg eldhúsinnrétting, ísskápur og uppþvotavél geta fylgt.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, með flísum á gólfi og hluta af vegg, upphengdu klósetti og baðkari með sturtuaðstöðu.
Aðstaða fyrir þvottavél er innan íbúðar.
Svefnherbergi með útgengi út á svalir.
Steypt gólf er á báðum íbúðum.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hallir Fasteignamiðlun því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.